Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun lokið


 

Í viku 10 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 54.800.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
06.3.2017 13:55:26 1.000.000 18,40 18.400.000
08.3.2017 15:24:26 1.000.000 18,45 18.450.000
10.3.2017 15:15:12 1.000.000 17,95 17.950.000
Samtals   3.000.000   54.800.000

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins á eigin bréfum nema að hámarki 130.945.271 hlutum eða sem nemur 8,38% af útgefnum hlutum í félaginu, þó ekki meira en 1.700.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin var í gildi til 11. mars 2017 nema ef kaupum samkvæmt henni yrði lokið áður.

Gildistími endurkaupaáætlunarinnar er nú liðinn. Samtals hafa verið keyptir 54.973.897 hlutir í félaginu sem samsvarar 3,52% af útgefnu hlutafé. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 835.439.932. Sjóvá á samtals 5,14% af heildarhlutafé félagsins eða samtals 80.272.302 hluti.

Endurkaupaáætlunin var framkvæmd í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

 

Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000