Aðalfundur Vátryggingafélags Íslands hf. fer fram í dag í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 16 og opnar húsið kl. 15.30.
Dagskrá og ályktunartillögur eru óbreyttar frá fyrri tilkynningum.
Fundargögn verða afhent á fundarstað og eru þau á íslensku en hluthafafundurinn fer einnig fram á íslensku.
Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa og annað sem varðar aðalfundinn, svo sem ályktunartillögur stjórnar, starfskjarastefnu, starfsreglur um kaupaukakerfi, eyðublöð og slíkt, er að finna á vefsíðu félagsins: www.vis.is/fjarfestar.