Vátryggingafélagi Íslands hf. hefur borist tilkynning frá Herdísi Dröfn Fjeldsted stjórnarmanni, um úrsögn úr stjórn félagsins frá og með deginum í dag.
Eftirfarandi skipa þá stjórn félagsins:
Aðalmenn
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, formaður
Helga Hlín Hákonardóttir, varaformaður
Gestur Breiðfjörð Gestsson
Valdimar Svavarsson
Varamenn
Andri Gunnarsson
Sandra Hlíf Ocares
Stjórn félagsins er ákvörðunarbær, sbr. 71. gr. laga um hlutafélög og samþykktum félagsins.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Helga Herbertsdóttir í síma 660-5191 eða í tölvupóstfanginu: fjarfestatengsl@vis.is.