Hæstiréttur mildar dóm Héraðsdóms í máli Norvikur hf. gegn Högum hf.


Þann 18. desember 2012 barst Högum stefna frá Kaupás ehf. þar sem félagið höfðaði mál á hendur Högum hf. til heimtu skaðabóta. Aðalkrafa var að fjárhæð 233.351.961 krónum auk vaxta frá janúar 2009. Varakröfur námu lægri upphæðum. Við sölu Kaupás ehf. var krafan framseld til Norvikur hf. og tók það fyrirtæki þá við rekstri málsins.

Þann 22. mars 2016 dæmdi Héraðsdómur Reykjaness Haga til að greiða Norvik hf. 218.726.487 krónur í skaðabætur vegna tjóns af völdum svonefnds mjólkurverðstríðs á árunum 2005-2006, auk vaxta og málskostnaðar. Í ársreikningi Haga fyrir rekstrarárið 2015/16 voru gjaldfærðar 413 milljónir króna vegna málsins.

Hagar áfrýjuðu dómi Héraðsdóms til Hæstaréttar sem í dag úrskurðaði Haga til greiðslu þriðju varakröfu um skaðabætur að fjárhæð 51.451.381 króna auk vaxta og málskostnaðar. Hagar munu því í ársreikningi sínum fyrir rekstrarárið 2016/17, sem birtur verður 15. maí nk, tekjufæra tæpar 300 milljónir króna vegna málsins.

 

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., í síma 530-5500.