Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 

Í viku 15 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.000.000 eigin hluti að kaupverði 18.450.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
11.04.2017 09:48:38 1.000.000 18,45 18.450.000
Samtals   1.000.000   18.450.000
           

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.

Sjóvá átti 85.737.088 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 86.737.088 eigin hluti eða sem nemur 5,55% af útgefnum hlutum í félaginu.

Á aðalfundi Sjóvá þann 17. mars 2017, var samþykkt að hlutafé félagsins yrði lækkað um 72.190.770 kr. að nafnverði til jöfnunar eigin hluta á grundvelli ákvæði laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Hlutafé Sjóvá mun þar með lækka úr 1.562.436.767 kr. að nafnverði í 1.490.245.997 kr. að nafnverði. Fyrirhuguð hlutafjárlækkun verður framkvæmd þegar lögboðin skilyrði fyrir lækkuninni hafa verið uppfyllt, svo sem að fyrir liggi heimild Fyrirtækjaskrár og Fjármálaeftirlitsins.

Að teknu tilliti til fyrirhugaðrar hlutafjárlækkunar átti Sjóvá 13.546.318 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 14.546.318 eigin hluti eða sem nemur 0,98% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 6.464.786 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,43% af útgefnum hlutum í félaginu, að teknu tilliti til fyrrgreindrar hlutafjárlækkunar og nemur heildarkaupverð þeirra 116.521.103 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu miðað við fjölda hluta í Sjóvá að teknu tilliti til fyrrgreindar hlutafjárlækkunar. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is