Sjóvá: Uppgjör 1. ársfjórðungs 2017 verður birt 27. apríl - kynningarfundur sama dag kl. 16:15


Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2017 eftir lokun markaða fimmtudaginn 27. apríl. Markaðsaðilum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð kl. 16:15 þann sama dag. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.

Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef Sjóvár www.sjova.is frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á vefnum á slóðinni www.sjova.is/afkomukynningar.