VÍS: Birting uppgjörs fyrsta ársfjórðungs 2017 og kynningarfundur


Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs ársins 2017, þriðjudaginn 2. maí nk. eftir lokun markaðar.

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins verður haldinn daginn eftir, þann 3. maí nk., kl. 08:30 í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti frá kl. 08:15.

Jakob Sigurðsson, forstjóri, mun, ásamt Guðmari Guðmundssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs og Tryggva Guðbrandssyni, forstöðumanni fjárfestinga, kynna afkomuna og svara spurningum.

Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins: http://vis.is/fjarfestar