Hagnaður 1.100 m.kr. á fyrstu þremur mánuðum ársins
- Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 136 m.kr.
- Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 1.024 m.kr.
- Ávöxtun eignasafns félagsins 3,9%
- Ávöxtun af skráðum hlutabréfum umfram væntingar eða 10% á tímabilinu
Hermann Björnsson, forstjóri:
„Sjóvá sendi frá sér fréttatilkynningu þann 10. apríl sl. um afkomu félagsins sem telst góð fyrir fyrsta árfjórðung eða 1.100 m.kr. Eins og oft áður er það góð afkoma af fjárfestingum, einkum skráðum hlutabréfum, sem drífur áfram hagnað tímabilsins. Merkjanlegur bati er á grunnrekstrinum frá sama tíma og í fyrra þar sem samsett hlutfall lækkar úr 106,9% í 103,5%. Sú afkoma getur samt sem áður ekki talist ásættanleg til lengri tíma og stefnt er að því að koma hlutfallinu í 97-99% í lok árs. Af þeim þremur mánuðum sem liðnir eru af árinu var afkoman fyrir janúar og febrúar mun betri en fyrir mars. Í þeim mánuði féllu til óvenju mörg stærri tjón. Mikilvægt er að fylgjast með tjónaþróun í þeim efnahagsuppgangi sem nú er og verðleggja áhættur rétt. Það á við um margar vátryggingagreinar en þó sérstaklega bifreiðatryggingar þar sem aukning umferðar er gríðarleg.“ segir Hermann.
Helstu niðurstöður og lykiltölur
1F | 4F | 3F | 2F | 1F | |
2017 | 2016 | 2016 | 2016 | 2016 | |
Vátryggingastarfsemi | |||||
Iðgjöld tímabilsins | 3.849 | 4.051 | 4.073 | 3.691 | 3.584 |
Hluti endurtryggjenda í iðgjaldatekjum | -180 | -210 | -312 | -208 | -181 |
Eigin iðgjöld | 3.669 | 3.841 | 3.761 | 3.482 | 3.403 |
Fjárfestingatekjur af vátryggingarekstri | 276 | 183 | 191 | 204 | 199 |
Aðrar tekjur | 16 | 43 | 91 | 4 | 11 |
Heildartekjur af vátryggingarekstri | 3.961 | 4.067 | 4.044 | 3.690 | 3.613 |
Tjón tímabilsins | -2.951 | -3.008 | -2.836 | -2.723 | -2.692 |
Hluti endurtryggjenda í tjónum tímabilsins | 50 | 8 | -7 | 40 | -43 |
Eigin tjón | -2.902 | -2.999 | -2.843 | -2.684 | -2.735 |
Rekstrarkostnaður af vátryggingarekstri | -924 | -892 | -808 | -879 | -928 |
Heildargjöld af vátryggingarekstri | -3.825 | -3.892 | -3.651 | -3.562 | -3.664 |
Hagnaður/tap af vátryggingarekstri | 136 | 175 | 394 | 128 | -51 |
Fjárfestingastarfsemi | |||||
Fjárfestingatekjur af fjárfestingastarfsemi | 1.089 | 1.176 | 598 | 374 | 510 |
Rekstrarkostnaður af fjárfestingastarfsemi | -65 | -72 | -60 | -43 | -63 |
Hagnaður af fjárfestingastarfsemi | 1.024 | 1.104 | 538 | 331 | 446 |
Hagnaður fyrir tekjuskatt | 1.159 | 1.279 | 932 | 458 | 396 |
Tekjuskattur | -59 | -156 | -74 | -173 | 27 |
Heildarhagnaður tímabilsins | 1.100 | 1.124 | 858 | 286 | 423 |
1F | 4F | 3F | 2F | 1F | |
2017 | 2016 | 2016 | 2016 | 2016 | |
Tjónahlutfall | 76,6% | 74,2% | 69,6% | 73,8% | 75,1% |
Endurtryggingahlutfall | 3,0% | 3,9% | 5,6% | 4,5% | 6,0% |
Kostnaðarhlutfall | 24,0% | 22,0% | 19,8% | 23,9% | 25,8% |
Samsett hlutfall | 103,6% | 100,2% | 95,0% | 102,2% | 106,9% |
Ávöxtun eigin fjár | 26,7% | 26,6% | 20,7% | 7,0% | 10,5% |
Hagnaður á hlut | 0,75 | 0,75 | 0,56 | 0,18 | 0,27 |
Eigið fé | 15.472 | 17.454 | 16.900 | 16.197 | 15.940 |
Gjaldþolshlutfall SII | 1,56 | 1,91 | 1,95 | 1,93 | 1,83 |
Kynningarfundur 27. apríl kl. 16:15
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2017, fimmtudaginn 27. apríl kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is.
Samstæðureikningur Sjóvár fyrir fyrsta ársfjórðung var samþykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 27. apríl 2017. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.