Tekjur á fyrsta fjórðungi jukust um 20% og EBITDA nam 242 mkr. Eiginfjárhlutfall í 40%.
Helstu upplýsingar:
· Sala á vöru og þjónustu nam 3.996 mkr á fyrsta ársfjórðungi (20% tekjuvöxtur frá F1 2016) [F1 2016: 3.332]
· Framlegð nam 976 mkr (24,4%) á fyrsta ársfjórðungi [F1 2016: 885 mkr (26,6%)]
· EBITDA nam 242 mkr (6%) á fyrsta ársfjórðungi [F1 2016: 180 mkr (5,4%)]
· Heildarhagnaður á fyrsta ársfjórðungi nam 71 mkr (1,8%) [F1 2016: 38 mkr (1,1%)]
· Eiginfjárhlutfall var 39,7% í lok fyrsta ársfjórðungs, samanborið við 33,7% í lok árs 2016
· Vaxtaberandi langtímaskuldir voru greiddar niður um 300 mkr á fyrsta ársfjórðungi
· Starfsmenn innleystu kauprétti að kaupverði 149 mkr á fyrsta ársfjórðungi, kom til greiðslu í byrjun apríl
Finnur Oddsson, forstjóri:
„Rekstur samstæðunnar gekk um margt vel á fjórðungnum og er á áætlun. Við erum ánægð með ágæta afkomu og áframhaldandi tekjuaukningu, um 20% á milli ára. Gott gengi að undanförnu hefur gert okkur kleift að grynnka verulega á skuldum og styrkja eiginfjárstöðu, sem hefur sjaldan verið sterkari.
Sala á tölvum og hljóð- og myndlausnum er sem fyrr stór hluti af okkar starfsemi en tekjur af hýsingar- og rekstrarþjónustu aukast heldur meira, m.a. vegna nýrra verkefna á borð við upplýsingatæknirekstur fyrir Arion banka frá því í byrjun árs.
Vöxtur hugbúnaðartengdrar starfsemi dregur vagninn í tekjuvexti félagsins eins og síðustu fjórðunga og áhersla á vöruþróun og sölu eigin lausna hefur aukist. Til marks um það hafa áskriftartekjur í Kjarna, launa- og mannauðslausn Applicon, nálægt þrefaldast á milli ára og vinna við nýsköpunar- og þróunarverkefni lofar góðu. Innleiðing á kjarnabankakerfum fyrir SBAB í Svíþjóð fer vel af stað og felur í sér umtalsverða vinnu fyrir sérfræðinga þar og á Íslandi. Tekjuvöxtur er áfram sterkur hjá TM Software, afkoma góð og unnið að spennandi vöruþróunverkefnum. Hjá Tempo gengur áfram vel og tekjur á fjórðungnum námu 4,4 mUSD, sem er 46% aukning. Viðskiptavinur númer 10.000 slóst í hópinn, sem er stór áfangi og endurspeglar styrk lausna Tempo. Samstarfs- og söluaðilar Tempo eru nú yfir 100 á heimsvísu, um fimmtungur starfsfólks vinnur nú í Kanada og Bandaríkjunum og stefnt að frekari fjölgun þar.
Ágæt eftirspurn er á flestum sviðum samstæðunnar, einkum eftir hýsingar- og rekstrarþjónustu og hugbúnaðarlausnum af ýmsu tagi. Horfur eru því góðar.“
Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is.
Sjá viðhengi.