Tryggingamiðstöðin býður til kynningar á afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi fimmtudaginn 11. maí kl. 8:30. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum félagsins að Síðumúla 24, 4. hæð.
Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins TM.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.
Hægt er að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: https://global.gotomeeting.com/join/186071693