VÍS: Helgi Bjarnason tekur við 1. júlí nk.


Vísað er til tilkynningar félagsins þann 19. apríl sl. um að Jakob Sigurðsson hafi ráðið sig til breska félagsins Victrex plc. og tilkynningar þann 3. maí sl. um að Helgi Bjarnason hafi verið ráðinn forstjóri VÍS í stað Jakobs.

Helgi mun taka við sem forstjóri VÍS þann 1. júlí nk. og mun Jakob áfram starfa sem forstjóri fram að þeim tíma.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Helga Herbertsdóttir, s. 660-5191.