Í viku 19 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 96.189 eigin hluti að kaupverði 1.827.591 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
9.5.2017 | 13:38:57 | 19.066 | 19,00 | 362.254 |
9.5.2017 | 13:39:56 | 52.123 | 19,00 | 990.337 |
9.5.2017 | 15:17:08 | 25.000 | 19,00 | 475.000 |
Samtals | 96.189 | 1.827.591 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.
Sjóvá átti 16.763.516 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 16.859.705 eigin hluti eða sem nemur 1,13% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 8.778.173 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,59% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 160.237.904 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is