Í viku 20 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.438.961 eigin hluti að kaupverði 64.671.996 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
15.5.2017 | 14:55:43 | 80.000 | 18,90 | 1.512.000 |
16.5.2017 | 10:23:20 | 896.000 | 18,85 | 16.889.600 |
16.5.2017 | 10:25:35 | 104.000 | 18,85 | 1.960.400 |
16.5.2017 | 10:38:49 | 76.264 | 18,70 | 1.426.137 |
16.5.2017 | 10:40:26 | 500.000 | 18,70 | 9.350.000 |
16.5.2017 | 12:03:11 | 19.066 | 18,70 | 356.534 |
16.5.2017 | 14:37:49 | 404.670 | 18,70 | 7.567.329 |
16.5.2017 | 14:55:18 | 354.728 | 18,55 | 6.580.204 |
17.5.2017 | 11:53:39 | 10.530 | 18,95 | 199.544 |
17.5.2017 | 13:34:39 | 989.470 | 18,95 | 18.750.457 |
19.5.2017 | 12:51:14 | 4.233 | 18,85 | 79.792 |
Samtals | 3.438.961 | 64.671.996 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.
Sjóvá átti 16.859.705 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 20.298.666 eigin hluti eða sem nemur 1,36% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 12.217.134 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,82% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 224.909.901 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is