Í viku 21 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.000.000 eigin hluti að kaupverði 18.950.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
24.5.2017 | 15:02:29 | 1.000.000 | 18,95 | 18.950.000 |
Samtals | 1.000.000 | 18.950.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.
Sjóvá átti 20.298.666 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 21.298.666 eigin hluti eða sem nemur 1,43% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 13.217.134 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,89% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 243.859.901 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is