Í viku 22 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 2.150.000 eigin hluti að kaupverð 40.125.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
30.5.2017 | 10:48:26 | 1.000.000 | 18,75 | 18.750.000 |
2.6.2017 | 10:37:03 | 48.600 | 18,60 | 903.960 |
2.6.2017 | 11:10:20 | 951.400 | 18,60 | 17.696.040 |
2.6.2017 | 11:16:41 | 150.000 | 18,50 | 2.775.000 |
Samtals | 2.150.000 | 40.125.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.
Sjóvá átti 21.298.666 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 23.448.666 eigin hluti eða sem nemur 1,57% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 15.367.134 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,03% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 283.984.901 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is