Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 

Í viku 23 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 10.600 eigin hluti að kaupverð 201.930 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
9.6.2017 12:06:51 10.600 19,05 201.930
                 Samtals   10.600   201.930

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.

Sjóvá átti 23.448.666 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 23.459.266 eigin hluti eða sem nemur 1,57% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 15.377.734 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,03% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 284.186.831 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

 

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is