Í viku 24 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.677.066 eigin hluti að kaupverði 31.798.454 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
12.6.2017 | 14:57:21 | 19.066 | 19,00 | 362.254 |
14.6.2017 | 15.29:42 | 1.000.000 | 19,00 | 19.000.000 |
15.6.2017 | 10:34:02 | 500.000 | 18,90 | 9.450.000 |
16.6.2017 | 15:16.22 | 158.000 | 18,90 | 2.986.200 |
Samtals | 1.677.066 | 31.798.454 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.
Sjóvá átti 23.459.266 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 25.136.332 eigin hluti eða sem nemur 1,69% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 17.054.800 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,14% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 315.985.285 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is