Í viku 26 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.613.298 eigin hluti að kaupverði 66.896.764 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
27.6.2017 | 10:06:30 | 1.000.000 | 18,55 | 18.550.000 |
27.6.2017 | 15:24:15 | 42.698 | 18,55 | 792.048 |
27.6.2017 | 15:24:43 | 180.000 | 18,55 | 3.339.000 |
28.6.2017 | 10:24:38 | 19.066 | 18,55 | 353.674 |
28.7.2017 | 10:38:31 | 980.934 | 18,55 | 18.196.326 |
28.7.2017 | 11:02:05 | 1.000.000 | 18,50 | 18.500.000 |
28.7.2017 | 12:27:27 | 19.066 | 18,35 | 349.861 |
28.7.2017 | 13:21:18 | 335.662 | 18,35 | 6.159.398 |
30.6.2017 | 10:22:47 | 16.806 | 18,30 | 307.550 |
30.6.2017 | 11:13:24 | 19.066 | 18,30 | 348.908 |
Samtals | 3.613.298 | 66.896.764 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.
Sjóvá átti 28.136.332 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 31.749.630 eigin hluti eða sem nemur 2,13% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 23.668.098 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,59% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 438.932.049 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is