Í 26. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.401.500 eigin hluti fyrir 138.047.900 kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskipta-verð | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
26.6.2017 | 10:13 | 350.000 | 100,0 | 35.000.000 | 8.217.296 |
27.6.2017 | 09:40 | 350.000 | 98,2 | 34.370.000 | 8.567.296 |
28.6.2017 | 10:29 | 350.000 | 97,6 | 34.160.000 | 8.917.296 |
29.6.2017 | 15:20 | 1.500 | 98,6 | 147.900 | 8.918.796 |
30.6.2017 | 14:46 | 350.000 | 98,2 | 34.370.000 | 9.268.796 |
Samtals | 1.401.500 | 138.047.900 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 24. mars 2017.
Reitir hafa nú keypt samtals 9.268.796 hluti í félaginu sem samsvarar 61,79% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 958.140.326 krónum sem samsvarar 63,88% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 9.268.796 hluti, eða 1,28% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.