Í júní flutti Icelandair um 488 þúsund farþega og voru þeir 11% fleiri en í júní á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 11% og sætanýting var 85,4% samanborið við 83,7% á sama tíma í fyrra. Farþegar Air Iceland Connect voru 33 þúsund í júní og fjölgaði um 9% á milli ára. Framboð félagsins var aukið um 11% samanborið við júní 2015. Sætanýting nam 66,8% og jókst um 0,3 prósentustig á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi fjölgaði um 37% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 25% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins jókst um 5% samanborið við júní í fyrra og herbergjanýting var 80,0% samanborið við 84,5% á síðasta ári. Eftirspurn bókana með skömmum fyrirvara var minni en áætlað var ásamt því að meira var um afbókanir hópa en á sama tíma í fyrra.
ICELANDAIR | JÚN 17 | JÚN 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 487.665 | 439.326 | 11% | 1.748.318 | 1.544.790 | 13% |
Sætanýting | 85,4% | 83,7% | 1,7 %-stig | 81,0% | 80,5% | 0,5 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.789,8 | 1.608,7 | 11% | 6.653,5 | 5.811,5 | 14% |
AIR ICELAND CONNECT | JÚN 17 | JÚN 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 33.145 | 30.286 | 9% | 160.528 | 148.343 | 8% |
Sætanýting | 66,8% | 66,5% | 0,3 %-stig | 65,3% | 69,0% | -3,7 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 21,3 | 19,2 | 11% | 90,7 | 78,6 | 15% |
LEIGUFLUG | JÚN 17 | JÚN 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 100,0% | 0,0 %-stig | 96,2% | 96,8% | -0,6 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.476 | 1.808 | 37% | 12.663 | 11.720 | 8% |
FRAKTFLUTNINGAR | JÚN 17 | JÚN 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 10.773 | 8.587 | 25% | 54.226 | 53.068 | 2% |
HÓTEL | JÚN 17 | JÚN 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 40.226 | 36.314 | 11% | 176.433 | 156.282 | 13% |
Seldar gistinætur | 32.162 | 30.669 | 5% | 138.421 | 121.665 | 14% |
Herbergjanýting | 80,0% | 84,5% | -4,5 %-stig | 78,5% | 77,8% | 0,6 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010