Leiðrétting - Misritun í töflu varðandi keypta hluti þann 6.7.2017 - hið rétta er 555.500 en ekki 555.000. Að öðru leyti allar tölur réttar.
Í viku 27 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 3.571.000 eigin hluti að kaupverð 64.463.800 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
3.7.2017 | 10:34:53 | 1.000.000 | 18,30 | 18.300.000 |
4.7.2017 | 14:33:05 | 1.000.000 | 18,20 | 18.200.000 |
6.7.2017 | 09:40:26 | 555.500 | 17,80 | 9.887.900 |
6.7.2017 | 11:21:19 | 10.000 | 17,80 | 178.000 |
7.7.2017 | 13:55:00 | 1.000.000 | 17,80 | 17.800.000 |
7.7.2017 | 14:53:31 | 5.500 | 17,80 | 97.900 |
Samtals | 3.571.000 | 64.463.800 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.
Sjóvá átti 31.749.630 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 35.320.630 eigin hluti eða sem nemur 2,37% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 27.239.098 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,83% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 503.395.849 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is