Í viku 29 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 500.000 eigin hluti að kaupverð 8.975.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
20.7.2017 | 13:54:10 | 500.000 | 17,95 | 8.975.000 |
Samtals | 500.000 | 8.975.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.
Sjóvá átti 37.191.699 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 37.691.699 eigin hluti eða sem nemur 2,53% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 29.610.167 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,99% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 545.625.889 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is