Útboð ríkisvíxla RIKV 18 0315


Miðvikudaginn 13. september kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokknum RIKV 18 0315 sem er með gjalddaga 15. mars 2018. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagurinn 15. september 2017.

 

Sótt verður um að RIKV 18 0315 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi föstudaginn 15. september 2017. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635.


Attachments

Útboðsskilmálar RIKV 13. sept.2017.pdf Frett RIKV 11.sept.2017.pdf