Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 8. september sl. stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér ekki kaupréttinn í RIKB 20 0205 en nýttu sér kaupréttinn í RIKB 28 1115 að nafnvirði 316.m.kr.. Heildarstærð eftir útboðið í RIKB 20 0205 er nú 74.724.000.000 að nafnvirði og í RIKB 28 1115 er nú 37.093.101.519 kr. að nafnvirði.
Uppgjör er 13. september 2017.