Sigurður Orri Jónsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Skeljungs, mun láta af störfum hjá félaginu á næstu mánuðum. Sigurður hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra hjá Skeljungi frá árinu 2015. Mun hann sinna störfum framkvæmdastjóra þar til eftirmaður hans hefur verið fundinn.
Nánari upplýsingar veitir Valgeir Baldursson, forstjóri; fjarfestar@skeljungur.is, s: 840-3022.