Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Arion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 8.680 m.kr. og fjöldi tilboða var 20.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 25 bárust 12 tilboð að nafnvirði samtals 7.820 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,69% - 2,75%. Samþykkt voru tilboð í ARION CBI 25 að fjárhæð 7.280 m.kr. á 2,71% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 19.920 m.kr. eftir útgáfuna.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust 5 tilboð að nafnvirði samtals 600 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,39%–5,45%.  Öllum tilboðum í ARION CB 22 var hafnað að þessu sinni.

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 19 bárust 3 tilboð að nafnvirði samtals 800 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,19% - 5,25%. Öllum tilboðum í ARION CB 19 var hafnað að þessu sinni.

Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokki sem hefur verið til viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 11. október 2017.

Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 1. nóvember næstkomandi.

Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 88.340 m.kr.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.