Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung ársins 2017, fimmtudaginn 26. október 2017. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 27. október 2017 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í sal 4-5. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.
Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/