Icelandair Group, eigandi Iceland Travel ehf., og eigendur Allrahanda GL ehf. hafa ákveðið að slíta samningaviðræðum um sameiningu félaganna. Eins og fram kom í tilkynningu Icelandair Group þann 9. ágúst sl. var samruninn gerður með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakannana. Þeim er nú lokið og hefur verið ákveðið að samruninn gangi ekki eftir.
Nánari upplýsingar veita
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801