Í desember flutti Icelandair 235 þúsund farþega og voru þeir 7% fleiri en í desember árið 2016. Framboðsaukning á milli ára nam 10% og sætanýting var 76,5% samanborið við 77,2% árinu á undan. Farþegar Air Iceland Connect voru 23 þúsund og fjölgaði um 13% á milli ára. Air Iceland Connect jók framboðið um 18% og sætanýting nam 58,7%. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 55% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 19% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 68,2% samanborið við 67,9% í desember í fyrra.
Flutningatölur fyrir árið 2017 liggja nú fyrir. Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á árinu 2017. Þeir voru alls 4,0 milljónir og fjölgaði um 10% frá fyrra ári. Sætanýting ársins nam 82,5% og jókst um 0,3 prósentustig samanborið við árið 2016. Heildarfjöldi farþega Air Iceland Connect var 349 þúsund og jókst um 7% á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 17% og flutt frakt um 11%. Herbergjanýting á hótelum félagsins á árinu 2017 var 81,2% samanborið við 81,5% árið 2016.
ICELANDAIR | DES 17 | DES 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 235.219 | 219.937 | 7% | 4.037.503 | 3.674.417 | 10% |
Sætanýting | 76,5% | 77,2% | -0,7 %-stig | 82,5% | 82,2% | 0,3 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 945,9 | 861,2 | 10% | 15.245,6 | 13.653,3 | 12% |
AIR ICELAND CONNECT | DES 17 | DES 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 23.279 | 20.603 | 13% | 349.273 | 327.427 | 7% |
Sætanýting | 58,7% | 58,8% | -0,1 %-stig | 65,9% | 68,3% | -2,5 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 14,6 | 12,4 | 18% | 214,5 | 191,2 | 12% |
LEIGUFLUG | DES 17 | DES 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 88,9% | 11,1 %-stig | 98,1% | 88,9% | 9,2 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.889 | 1.865 | 55% | 27.460 | 23.523 | 17% |
FRAKTFLUTNINGAR | DES 17 | DES 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 10.236 | 8.576 | 19% | 117.311 | 105.925 | 11% |
HÓTEL | DES 17 | DES 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 27.807 | 27.807 | 0% | 371.289 | 352.214 | 5% |
Seldar gistinætur | 18.963 | 18.886 | 0% | 301.302 | 287.160 | 5% |
Herbergjanýting | 68,2% | 67,9% | 0,3 %-stig | 81,2% | 81,5% | -0,4 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010