Í janúar var farþegafjöldi Icelandair 209 þúsund og jókst um 2% miðað við janúar á síðasta ári. Framboð var aukið um 6%. Sætanýting var 72,2% samanborið við 73,6% í janúar í fyrra. Farþegar Air Iceland Connect voru um 22 þúsund og fjölgaði um 10% á milli ára. Framboð í janúar var 25% meira en í janúar á síðasta ári og skýrist það af flugi til Belfast sem flogið er í samstarfi við Icelandair og hófst í júní 2017 ásamt flugi á milli Keflavíkur og Akureyrar sem byrjaði í lok febrúar árið 2017. Sætanýting nam 57,8%. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi var óbreyttur á milli ára. Fraktflutningar jukust um 42% á milli ára. Skýrist það af auknum innflutningi til landsins, en einnig hefur verkfall sjómanna á Íslandi á síðasta ári áhrif á samanburðinn. Seldum gistinóttum hjá hótelum félagsins fækkaði um 3% á milli ára. Herbergjanýting var 67,3% samanborið við 69,2% í janúar 2017.
ICELANDAIR | JAN 18 | JAN 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 209.398 | 205.734 | 2% |
Sætanýting | 72,3% | 73,6% | -1,3 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 907,0 | 855,2 | 6% |
AIR ICELAND CONNECT | JAN 18 | JAN 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 22.299 | 20.225 | 10% |
Sætanýting | 57,8% | 62,2% | -4,4 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 14,0 | 11,1 | 25% |
LEIGUFLUG | JAN 18 | JAN 17 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 88,9% | 11,1 %-stig |
Seldir blokktímar | 1.848 | 1.848 | 0% |
FRAKTFLUTNINGAR | JAN 18 | JAN 17 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 10.498 | 7.398 | 42% |
HÓTEL | JAN 18 | JAN 17 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 27.807 | 27.807 | 0% |
Seldar gistinætur | 18.708 | 19.234 | -3% |
Herbergjanýting | 67,3% | 69,2% | -1,9 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010