- EBITDA ársins var 170,2 milljónir USD samanborið við 219,8 milljónir USD árið 2016.
- Hagnaður ársins eftir skatta var 37,7 milljónir USD samanborið við 89,1 milljón USD árið 2016.
- EBITDA á 4. ársfjórðungi var neikvæð um 16,9 milljónir USD og lækkar á milli ára.
- Heildartekjur jukust um 14% á 4. ársfjórðungi.
- Eiginfjárhlutfall í lok ársins er 42%.
- EBITDA spá fyrir árið 2018 nemur 170-190 milljónum USD.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
„Afkoma ársins er í takt við seinustu afkomuspá okkar. Arðbær vöxtur félagsins heldur áfram og sterk fjárhagsstaða og sveigjanleiki gera okkur kleift að bregðast við aðstæðum og grípa ný og spennandi tækifæri á markaði. Icelandair flutti rúmlega fjórar milljónir farþega í millilandaflugi á árinu og hafa þeir aldrei verið fleiri.
Í lok þessa mánaðar fáum við afhenta fyrstu Boeing 737-MAX vélina. Það eru ákveðin tímamót, upphafið að endurnýjun flugflotans, sem er stórt og spennandi verkefni. Við höfum á undanförnum mánuðum gert breytingar á vöruframboði okkar meðal annars með nýjum fargjaldaflokki, Economy Light. Jafnframt hafa verið kynntir sjö nýir áfangastaðir í leiðarkerfinu. Nýjungar og breytingar sem þessar endurspegla þann sveigjanleika og fjárhagslega styrk sem félagið hefur til að bregðast við á kvikum markaði.
Mikil samkeppni er á öllum okkar mörkuðum. Bókunarstaða í millilandaflugi er góð á fyrri árshelmingi en töluverð óvissa er á síðari hluta ársins, einkum hvað varðar þróun meðalfargjalda. Afkomuspá félagsins fyrir árið 2018 endurspeglar þessa óvissu en gert er ráð fyrir að EBITDA ársins verði 170-190 milljónir USD.
Í upphafi þessa árs kynntum við nýtt skipulag félagsins. Með því næst fram skýrari áhersla á kjarnastarfsemi okkar auk þess sem það stuðlar að einföldun ferla, styttri boðleiðum og aukinni hagkvæmni í rekstri. Þannig munum við vera betur í stakk búin til að takast á við síbreytilegt umhverfi fyrirtækja, með aukinni alþjóðavæðingu og tækniframförum. Starfsfólk félagsins hefur að venju skilað framúrskarandi starfi og viðskiptavinir haldið tryggð við félagið – það erum við þakklát fyrir.“
Frekari upplýsingar veita
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455.
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801.