Í 7. viku 2018 keyptu Hagar hf. 2.979.288 eigin hluti fyrir kr. 123.470.806 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Haga eftir viðskipti |
12.2.2018 | 13:56 | 1.181.592 | 41,30 | 48.799.750 | 67.370.653 |
13.2.2018 | 14:55 | 1.181.592 | 41,40 | 48.917.909 | 68.552.245 |
16.2.2018 | 09:46 | 616.104 | 41,80 | 25.753.147 | 69.168.349 |
Samtals | 2.979.288 | 123.470.806 | |||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 28. nóvember 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 27. nóvember 2017.
Endurkaupaáætluninni er nú lokið en Hagar hafa keypt samtals 25.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 100,00% af þeim eigin hlutum sem að hámarki mátti kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 957.498.277 sem samsvarar 95,75% af þeirri fjárhæð sem að hámarki mátti kaupa fyrir. Hagar eiga nú samtals 69.168.349 eigin hluti, eða 5,90% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.171.502.190.
Endurkaupaáætlunin var í gildi til 6. júní 2018 eða fram að aðalfundi félagsins 2018. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf voru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.