Meðfylgjandi eru upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins sem kosnir verða á aðalfundinum 22. mars 2018.
Framboðsfrestur er útrunninn. Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur fimm menn í stjórn og tvo til vara og er því sjálfkjörið.
Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 22. mars 2018 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2, Reykjavík og hefst kl. 16:00.