Skeljungur hf.: Frambjóðendur til stjórnar Skeljungs - Aðalfundur 20. mars 2018


Aðalfundur Skeljungs hf. verður haldinn þann 20. mars 2018. kl. 16.00 á Hilton Nordica Reykjavík, í fundarsal D.

Framboðsfrestur til stjórnar og tilnefningarnefndar Skeljungs hf. er runninn út. Ekki bættust við önnur framboð en fram komu í tillögu tilnefningarnefndar til stjórnar Skeljungs. Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér í stjórn félagsins:

  • Birna Ósk Einarsdóttir
  • Gunn Ellefsen
  • Jens Meinhard Rasmussen
  • Jón Diðrik Jónsson
  • Baldur Már Helgason

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm manns. Það er því ljóst að stjórn er sjálfkjörin og ekki mun koma til atkvæðagreiðslu. Ákvæði laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll eru uppfyllt með skipan framangreindrar stjórnar.

Framboð til tilnefningarnefndar:

  • Katrín S. Óladóttir
  • Trausti Fannar Valsson

Nánari upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar og tilnefningarnefndar eru í viðhengi.

Öll fundargögn má finna á heimasíðu félagsins: https://www.skeljungur.is/adalfundur2018

Frekari upplýsingar veitir Gróa Björg Baldvinsdóttir, regluvörður, sími 840-3040, tölvup. regluvordur@skeljungur.is.

Skeljungur er olíufélag með starfsemi á Íslandi og í Færeyjum. Skeljungur selur eldsneyti og olíur til einstaklinga og fyrirtækja í sjávarútvegi, landbúnaði, landflutningum, flugi og til verktaka undir merkjunum Skeljungur, Orkan og OrkanX. Fyrirtækið selur einnig áburð og ýmsar aðrar efnavörur. Á Íslandi  eru starfræktar 65 bensínstöðvar og 4 birgðastöðvar. Dótturfélagið Magn er rótgróið félag í Færeyjum sem rekur 11 smásölu- og bensínstöðvar víðs vegar um Færeyjar auk þess að reka 2 birgðastöðvar.  Magn þjónustar einnig og selur olíu til húshitunar til einstaklinga og fyrirtækja í Færeyjum. Meginmarkmið Skeljungs er að að þjóna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við umhverfi sitt.

www.skeljungur.is

https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/

Attachment:

http://www.globenewswire.com/NewsRoom/AttachmentNg/5b4f0d9a-5021-47e9-a6a1-bd09b4472697


Attachments

Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar Skeljungs 2018.pdf