Orkuveita Reykjavíkur lauk í gær, 3. maí 2018, útboði á nýjum skuldabréfum. Fossar Markaðir höfðu umsjón með útboðinu fyrir hönd OR.
Heildareftirspurn í útboðinu nam samtals 1.300 m. kr. að nafnverði.
Heildartilboð í flokkinn OR090546 voru samtals 720 m. kr. á bilinu 2,80% - 2,86%. Öll í tilboð í flokkinn OR090546 voru samþykkt.
Heildartilboð í flokkinn OR090524 voru samtals 580 m. kr. á bilinu 2,70% - 2,90%. Tilboðum að fjárhæð 280 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,82%.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 11. maí næstkomandi.
Nánari upplýsingar veita:
Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100, ingvar.stefansson@or.is.
Matei Manolescu, skuldabréfamiðlun Fossa markaða, sími 522 4008, netfang matei.manolescu@fossarmarkets.com