Stöðugleiki einkennir niðurstöðu reksturs Orkuveitu Reykjavíkur fyrstu þrjá mánuði ársins. Þetta sýnir árshlutareikningur samstæðunnar sem stjórn fyrirtækisins samþykkti í dag. Innan samstæðunnar eru, auk móðurfyrirtækisins, Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur.
Þrátt fyrir lækkun Veitna á gjaldskrám vatnsveitu og rafmagnsdreifingar vaxa tekjur milli ára. Því ráða aukin umsvif í samfélaginu sem birtist meðal annars í aukinni sölu á heitu vatni. Sveiflur í álverði koma fram í reiknuðum stærðum í árshlutareikningnum. Þær voru óhagstæðar fyrstu þrjá mánuði ársins sem nam 5,2 milljörðum króna. Á sama tímabili 2017 var þessi stærð hagstæð um 5,3 milljarða. Heildarniðurstaða fyrsta ársfjórðungs 2018 er engu að síður jákvæð sem nemur 390 milljónum króna.
Tillaga um arðgreiðslu
Stjórn OR samþykkti einnig í dag tillögu til aðalfundar fyrirtækisins um að eigendum OR – Reykjavíkurborg, Akraneskaupstað og Borgarbyggð – verði greiddur arður vegna ársins 2017 að fjárhæð 1.250 mkr. Aðalfundur OR verður haldinn í næsta mánuði.
Bjarni Bjarnason, forstjóri OR:
Grunnrekstur Orkuveitu Reykjavíkur er afar traustur. Árshlutareikningurinn endurspeglar aukin umsvif í samfélaginu, við sjáum tekjur vaxa en líka rekstrarkostnað og þurfum að halda vöku okkar. Við erum að þróa áfram þá grunnþjónustu sem fyrirtækin innan OR-samstæðunnar veita. Orkuskipti í samgöngum standa yfir og framundan er snjallvæðing rafdreifikerfisins.
Yfirlit stjórnenda
Fjárhæðir í milljónum króna | F1 2015 | F1 2016 | F1 2017 | F1 2018 |
Rekstrartekjur | 11.110 | 11.336 | 11.822 | 12.263 |
Rekstrarkostnaður | (3.880) | (4.079) | (4.138) | (4.511) |
þ.a. orkukaup og flutningur | (1.868) | (1.635) | (1.701) | (1.730) |
EBITDA | 7.230 | 7.257 | 7.685 | 7.752 |
Afskriftir | (2.399) | (2.406) | (2.384) | (2.287) |
Rekstrarhagnaður (EBIT) | 4.831 | 4.850 | 5.301 | 5.464 |
Afkoma tímabilsins | 3.276 | 2.535 | 6.039 | 390 |
Nánari upplýsingar:
Bjarni Bjarnason
forstjóri
516 6100
Viðhengi