Orkuveita Reykjavíkur lauk í gær, 21. ágúst 2018, útboði á nýjum skuldabréfum. Fossar Markaðir höfðu umsjón með útboðinu fyrir hönd OR.
Heildareftirspurn í útboðinu nam samtals 5.115 m. kr. að nafnverði.
Heildartilboð í flokkinn OR090546 voru samtals 2.040 m. kr. á bilinu 2,75% - 2,89%. Tilboðum að fjárhæð 1.580 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,85%.
Heildartilboð í flokkinn OR090524 voru samtals 3.075 m. kr. á bilinu 2,65% - 2,80%. Tilboðum að fjárhæð 2.365 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,75%.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 28. ágúst næstkomandi.
Nánari upplýsingar veita:
Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100, ingvar.stefansson@or.is.
Matei Manolescu, skuldabréfamiðlun Fossa markaða, sími 522 4008, netfang matei.manolescu@fossarmarkets.com