Birting lýsingar fagfjárfestasjóðsins Landsbréfa - BÚS I


Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf - BÚS I, kt. 651116-9960, Borgartúni  33, 105 Reykjavík Íslandi, hefur birt lýsingu sem samanstendur af verðbréfalýsingu dagsettri 5. október 2018 og útgefandalýsingu dagsettri 22. desember 2017 sem uppfærð er í verðbréfalýsingunni dagsettri 5. október 2018. Lýsingin er birt í tengslum við umsókn um stækkun skuldabréfaflokksins BUS 56 sem skráður er á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf.  Lýsingin  hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu, í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.

Lýsingin er á íslensku og er birt á rafrænu formi á vef Landsbréfa hf., rekstrarfélags Landsbréfa BÚS - I, www.landsbref.is/skrad-skuldabref. Fjárfestar geta einnig nálgast útprentuð eintök af lýsingunni sér að kostnaðarlausu hjá Landsbréfum - BÚS I, Borgartúni 33, 105 Reykjavík.

Skuldabréfaflokkurinn var stækkaður um 2.620.000.000 krónur að nafnvirði. Útboðið taldist ekki almennt útboð í skilningi 43. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og var útgáfa skuldabréfanna einungis boðin útvöldum fagfjárfestum til kaups, í samræmi við  9. tl. 2 gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Sótt verður um töku stækkunarinnar að nafnvirði 2.620.000.000 krónur til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Stærð skuldabréfaflokksins eftir stækkun verður 8.100.000.000 krónur. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt í kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf.  og eru með ISIN númer IS0000028173.

Nasdaq Iceland hf. mun birta tilkynningu um töku skuldabréfanna til viðskipta og hvenær viðskipti með þau geti hafist með a.m.k. eins viðskiptadags fyrirvara.

Frekari upplýsinga má fá á skrifstofu Landsbréfa Borgartúni 33 í Reykjavík

Reykjavík 5. október 2018


Viðhengi


Attachments

2018-10-05 lýsing BUS 56 - Landsbréf - BÚS I