Hluthafafundur Sjóvá 26. október 2018 - Endanlegar tillögur og dagskrá


Meðfylgjandi í viðhengi er endanleg dagskrá og tillögur hluthafafundar Sjóvá-Almennra trygginga hf. 26. október 2018.

Frestur hluthafa til að fá tiltekin mál tekin til meðferðar á fundinum rann út 16. október. Engin mál bárust og er upphafleg dagskrá fundarins óbreytt frá því sem tilkynnt var um í fundarboði sem m.a. birtist í Kauphöll þann 2. október síðastliðinn sbr. meðfylgjandi viðhengi.

Hluthafafundur Sjóvá-Almennra trygginga verður haldinn í fundarsal félagsins, Kringlunni 5, 103 Reykjavík, föstudaginn 26. október 2018 og hefst kl. 8:30. Nánari upplýsingar varðandi fundinn má finna á vefsvæði félagsins www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir.

Viðhengi


Attachments

Endanlegar tillögur fyrir hluthafafund 26. október 2018 Upphaflegt fundarboð frá 2. okt. 2018