Origo hf. – Fjárfestakynning 1. nóvember 2018 í ráðstefnusal félagsins kl. 08:30.


REYKJAVÍK - 23. október 2018

Origo hf. heldur opinn kynningarfund vegna uppgjörs annars ársfjórðungs félagsins fimmtudaginn 1. nóvember næstkomandi.

Á fundinum mun Finnur Oddsson forstjóri kynna rekstur og afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningin fer fram í ráðstefnusal Origo á 1. hæð, að Borgartúni 37 og hefst klukkan 08:30.
Boðið verður upp á morgunmat frá kl. 08:15.

Hægt verður að fylgjast með netstreymi af fundinum, sem má nálgast hér: https://www.origo.is/fjarfestakynning/


Nánari upplýsingar

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is.