Í viku 45 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 1.428.163 eigin hluti að kaupverði 20.819.236 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
5.11.2018 | 09:38:33 | 1.035.038 | 14.44 | 14.945.949 |
8.11.2018 | 15:10:16 | 50.198 | 14,94 | 749.958 |
8.11.2018 | 15:13:01 | 342.927 | 14,94 | 5.123.329 |
Samtals | 1.428.163 | 20.819.236 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 11. júní 2018.
Sjóvá átti 34.192.266 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 35.620.429 eigin hluti eða sem nemur 2,50% af útgefnum hlutum í félaginu.
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið. Sjóvá hefur keypt samtals 35.620.429 eigin hluti í félaginu sem samsvarar 2,50% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 534.282.060 kr. Sjóvá á samtals 2,50% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.424.817.192. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins á eigin bréfum nema að hámarki 35.620.429 hlutum eða sem nemur 2,50% af útgefnum hlutum í félaginu, þó ekki meira en 550.000.000 kr.
Endurkaupaáætlunin var framkvæmd í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is