Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 18. desember 2018 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er eftir atvikum endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa.
Alls bárust tilboð í flokkana þrjá að nafnvirði 5.070 milljóna króna. Var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 1.590 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,50% í flokknum REITIR151244 og að nafnvirði 1.265 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 2,80% í flokknum REITIR151124. Tilboðum í flokkinn REITIR 22 var ekki tekið.
Heildarstærð ofangreindra flokka verður eftirfarandi:
Flokkur: | Áður útgefið: | Eftir útgáfu nú: |
REITIR151244 | 35.815.200.000 | 37.405.200.000 |
REITIR151124 | 7.085.000.000 | 8.350.000.000 |
REITIR 22 | 1.155.000.000 | 1.155.000.000 |
Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð föstudaginn 21. desember 2018 og óskað verður eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.
Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669-4416.