Hluthafafundur Haga hf. 18. janúar 2019




Hluthafafundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn föstudaginn 18. janúar 2019 og hefst hann kl.09:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.

Dagskrá fundarins:

  1. Kosning stjórnar félagsins
  2. Önnur mál

Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar föstudaginn 11. janúar nk. Hluthöfum er bent á að óski þeir eftir að fá mál sett á dagskrá eða leggja fram ályktunartillögur á fundinum þarf að beina því skriflega og í endanlegu formi til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund (þriðjudaginn 8. janúar nk.) á netfangið hluthafafundur@hagar.is, eins og kveðið er á um í 1. og 2. mgr. 86. gr. hlutafélagalaga, sbr. lög nr. 2/1995. Þeim sem gefa vilja kost á sér  til setu í stjórn Haga hf. er bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar Haga eigi síðar en kl. 16:00 þann 4. janúar 2019, á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar þann 11.janúar nk.

Hluthafar sem ekki sjá sér fært að mæta til fundar og heimila ekki öðrum aðila til að mæta á fund í sínu umboði geta tekið þátt í atkvæðagreiðslu á fundinum bréflega. Meðfylgjandi má finna nánari leiðbeiningar og atkvæðaseðil.

Stjórn félagsins vill árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga eða annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.

Stjórn Haga hf.

Viðhengi


Attachments

Framboð til stjórnarsetu 2019 - eyðublað Leidbeiningar fyrir hluthafa_atkvaedagreidsla 2019 Póstatkvæðaseðill hluthafafundur  2019 Auglýsing Hluthafafundur2019 Umboð fyrir hluthafafund 18012019