Í desember flutti Icelandair 263 þúsund farþega og voru þeir 12% fleiri en í desember árið 2017. Framboðsaukning á milli ára nam 9% og sætanýting var 79,6% samanborið við 76,8% árið á undan. Farþegar Air Iceland Connect voru um 19 þúsund og fækkaði um 17% á milli ára. Um miðjan maí í ár hætti félagið flugi til Belfast og Aberdeen og einnig á milli Keflavíkur og Akureyrar en það skýrir fækkunina milli ára ásamt niðurfellingum fluga vegna veðurs. Sætanýting nam 60,0% og jókst um 1,2 prósentustig á milli ára. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi dróst saman um 9% á milli ára og nýting lækkaði vegna viðhalds. Fraktflutningar jukust um 8% á milli ára. Framboðnum gistinóttum hjá hótelum félagsins fjölgaði um 20% á milli ára. Herbergjanýting var 66,9% samanborið við 68,2% í desember 2017.
Flutningatölur fyrir árið 2018 liggja nú fyrir. Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á árinu 2018. Þeir voru alls 4,1 milljón og fjölgaði um 2% frá fyrra ári. Sætanýting ársins nam 81,0% og dróst saman um 1,7 prósentustig samanborið við árið 2017. Heildarfjöldi farþega Air Iceland Connect var 319 þúsund og dróst saman um 9% á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 23% og flutt frakt um 7%. Herbergjanýting á hótelum félagsins á árinu 2018 var 80,1% samanborið við 81,2% árið 2017.
ICELANDAIR | DES 18 | DES 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 263.457 | 235.164 | 12% | 4.141.491 | 4.052.878 | 2% |
Sætanýting | 79,6% | 76,8% | 2,8 %-stig | 81,0% | 82,7% | -1,7 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.035,0 | 945,9 | 9% | 16.239,7 | 15.245,2 | 7% |
Seldir sætiskm. (RPK'000,000) | 823,6 | 726,6 | 13% | 13.154,1 | 12.606,6 | 4% |
Meðal flugleið (KM) | 3.151 | 3.066 | 3% | 3.208 | 3.073 | 4% |
AIR ICELAND CONNECT | DES 18 | DES 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 19.295 | 23.279 | -17% | 319.238 | 349.275 | -9% |
Sætanýting | 60,0% | 58,7% | 1,2 %-stig | 65,4% | 65,9% | -0,4 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 9,8 | 14,6 | -33% | 180,8 | 214,6 | -16% |
LEIGUFLUG | DES 18 | DES 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 84,6% | 100,0% | -15,4 %-stig | 91,9% | 98,1% | -6,2 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.637 | 2.889 | -9% | 33.670 | 27.460 | 23% |
FRAKTFLUTNINGAR | DES 18 | DES 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 11.010 | 10.236 | 8% | 125.758 | 117.055 | 7% |
HÓTEL | DES 18 | DES 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 33.418 | 27.807 | 20% | 407.994 | 371.289 | 10% |
Seldar gistinætur | 22.366 | 18.963 | 18% | 326.686 | 301.302 | 8% |
Herbergjanýting | 66,9% | 68,2% | -1,3 %-stig | 80,1% | 81,2% | -1,1 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group
S: 5050100