Tillaga tilnefningarnefndar um stjórnarmenn í Högum hf.


Stjórn Haga hf. hefur boðað til hluthafafundar í félaginu, sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík, föstudaginn 18. janúar 2019 kl. 09:00.

Á dagskrá fundarins er kosning stjórnar en frestur til að skila inn framboðum til tilnefningarnefndar rann út þann 4. janúar sl. kl. 16:00. Lögboðinn framboðsfrestur rennur út þann 13. janúar nk. kl. 09:00 eða fimm dögum fyrir hluthafafund.

Kristín Friðgeirsdóttir, stjórnarformaður, og Sigurður Arnar Sigurðsson, varaformaður stjórnar, gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.

Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins. Nánari upplýsingar um frambjóðendur má sjá í meðfylgjandi skjali.

Davíð Harðarson, fjármálastjóri Nordic Visitor
Eiríkur S. Jóhannsson, forstjóri Slippsins Akureyri
Erna Gísladóttir, forstjóri og eigandi BL ehf.
Jón Ásgeir Jóhannesson, fjárfestir
Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs Íslands
Kristján Óli Níels Sigmundsson, bifreiðastjóri og fjárfestir
Stefán Árni Auðólfsson, lögmaður hjá LMB lögmönnum slf.

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum. Tilnefningarnefnd hefur farið yfir þau framboð sem bárust innan tiltekins frests og leggur hún til að Davíð Harðarson, Eiríkur S. Jóhannsson, Erna Gísladóttir, Katrín Olga Jóhannesdóttir og Stefán Árni Auðólfsson verði kosin í stjórn félagsins. Skýrsla nefndarinnar er hér meðfylgjandi.

Þegar lögboðinn framboðsfrestur er runninn út, eða minnst tveimur dögum fyrir hluthafafund, verður tilkynnt um endanlegan lista frambjóðenda.


Stjórn Haga hf.

Viðhengi


Attachments

Framboð til stjórnar Haga 18.01.19 Tillaga tilnefninganefndar um stjórnarmenn í Högum hf - 11 jan 2019