Birting uppgjörs 4. ársfjórðungs 2018


Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung ársins 2018, fimmtudaginn 7. febrúar 2019. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 8. október 2019 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group, mun kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í sal 2. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/