Tilnefningarnefnd Regins hf. var skipuð á hluthafafundi félagsins 13. september 2018. Nefndin starfar í umboði hluthafa og er hlutverk hennar að vera ráðgefandi við val á stjórnarmönnum í stjórn félagsins.
Við mat á stjórnarmönnum leggur nefndin mat á hæfni hvers og eins ásamt því að huga að samsetningu stjórnarinnar með það að leiðarljósi að stjórnin í heild sinni búi yfir nægilegri hæfni, þekkingu og reynslu.
Tilnefningarnefnd vekur athygli á því að frestur til að skila inn framboðum til nefndarinnar er 7. febrúar 2019 og skal senda þær á tilnefningarnefnd@reginn.is.
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins www.reginn.is/fjarfestavefur.
Tilnefningarnefnd Regins hf.
Viðhengi