Reginn hf. mun birta samþykkt ársuppgjör 2018, eftir lokun markaða miðvikudaginn 13. febrúar 2019.
Af því tilefni býður Reginn hf. til opins kynningarfundar fimmtudaginn 14. febrúar nk. kl. 8:30 í anddyri Höfðatorgs (turninum), Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.
Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:
https://livestream.com/accounts/11153656/events/8551917/player
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, kynnir uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu. Einnig verður farið yfir ársskýrslu félagsins, áherslur í rekstri og rekstrarspá fyrir árið 2019.
Boðið verður upp á morgunverð.
Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262