Baldur Már Helgason hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri viðskipta hjá félaginu.
Um er að ræða nýja stöðu hjá Reginn. Helstu verkefni sem falla undir þessa stöðu eru:
- Taka þátt í að móta, samræma og framkvæma viðskiptastefnu félagsins. Leiða teymisvinnu við nýfjárfestingar og umbreytingar á núverandi eignasafni.
- Stýra samþættingu rekstrareininga sem snúa að viðskiptatækifærum þ.m.t. að leiða útleiguteymi félagsins.
- Hafa yfirumsjón með lánamálum, fjármögnun og endurfjármögnun félagsins og viðeigandi samskiptum við fjárfesta og fjármálastofnanir.
Baldur Már er véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Baldur var áður framkvæmdastjóri Eyju fjárfestingafélags þar sem hann bar ábyrgð á fjárfestingum og eignasafni félagsins auk þess að koma með margvíslegum hætti að rekstri dótturfélaga. Baldur hafði áður starfað í fjármálageiranum í um 16 ára skeið, m.a. sem fjárfestingastjóri á framtakssjóðasviði Virðingar frá árinu 2009 til ársloka 2016 þar sem Baldur bar ábyrgð á fjárfestingum og sölu á fyrirtækjum, samskiptum við fagfjárfesta og eftirfylgni fjárfestinga með stjórnarsetu í fjölda félaga. Þar áður starfaði hann sem fjárfestinga- og lánastjóri hjá Íslandsbanka á árunum 2000-2009, þar af í þrjú ár á skrifstofum bankans í Kaupmannahöfn og New York. Alls hefur Baldur setið í stjórnum og verið áheyrnarfulltrúi hjá á fjórða tug félaga, hér á landi og erlendis, og er í dag m.a. stjórnarmaður hjá Skeljungi.
Framkvæmdastjóri viðskipta heyrir beint undir forstjóra og situr í framkvæmdastjórn félagsins. Baldur hóf störf hjá Reginn í dag.
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262