REYKJAVÍK - 19. febrúar 2019
Origo hf. (ORIGO) keypti í þessari viku alls 304.705 eigin hluti fyrir kr. 7.230.033 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Origo eftir viðskipti |
18.2.2019 | 10:45 | 246.005 | 23,675 | 5.824.168 | 11.701.283 |
19.2.2019 | 09:33 | 58.700 | 23,950 | 1.405.865 | 11.759.983 |
Samtals | 304.705 | 7.230.033 |
Er hér um að ræða kaup félagsins í tengslum við endurkaupaáætlun félagsins sem samþykkt var af stjórn þann 11. desember síðastliðinn sbr. tilkynningu til kauphallar sama dag.
Origo hefur nú keypt samtals 11.600.000 hluti, sem samsvarar 100% af þeim eigin hlutum sem að hámarki skyldu keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 283.741.184. Origo á nú samtals 2,53% af heildarhlutafé félagsins sem er 465.303.309, en fyrir átti félagið 11.455.278 hluti.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni skyldu að hámarki keyptir 11.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna aldrei verða meiri en kr. 300.000.000. Heimildin gilti til 7. mars 2019. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf hafa verið í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.
Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is.